Viðar Örn
Afsakið biðina
      <description>Jæja já, nú mun ég messa yfir þeim sem eru að segja að þessi síða sé látinn!
Langt síðan ég hef bloggað en það sem hefur gengið á síðan þá:
Sigur í leik á móti Fjölni síðasta fimmtudag, gleði og hamingja hjá okkar mönnum
Fór til Reykjavíkur um helgina í fínustu ferð
Leikur á sunnudaginn var gegn Njarðvík þar sem við réðu ekki við Njarðvíkinga hvað þá heldur þegar þeir fengu dómarana með sér
Kom heim á mánudaginn og varð fyrir vonbrigðum þegar mamma var ekki búin að baka bollur
Var veikur í gær (þriðjudag) en er nú risinn úr rekkju og farinn að blogga eins og bloggara sæmir
En nú hef... (more)</description>
Henry er kóngurinn
      <description>Sælt veri fólkið og afsakið hversu lengi ég hef verið fjarri góðu gamni hérna á blogginu en nú verður aldeils messað!
Já eins og titillin segir ykkur þá fór kóngurinn Henry á kostum með Arsenal í gær þegar þeir yfirspiluðu Real Madrid í Madrid og voru mínir menn gríðalega óheppnir að vinna ekki mun stærra.
Það er langt síðan maður hefur séð Arsenal liðið spila svona vel og held ég að þeir eigi eftir að ná langt í Meistaradeildinni í ár!
Síðan var ball á föstudaginn með Á Móti Sól og voru þeir gríða góðir eins og venjulega, mikil stemming og helstu elítur mættar í partý hjá Markúsi fyrir... (more)</description>
Ronaldinho hvað??
      <description>HÆHÆ enn og aftur!
Maður segir nú allt það fína þessa dagana þrátt fyrir það að fuglaflensan nálgist hraðar og hraðar landið okkar litla.  Hvað gerist ef fuglaflensan berst til Íslands, ekki var það ég sem kaus Guðna Ágústsson sem landbúnaðarráðherra og Jón Kristjánsson sem heilbrigðisráðherra því þessir menn eiga ekki eftir að geta gert mikið þegar flensan skæða skellur á.  Búið að vera skíta veður í dag með snjó, vindi og öllu tilheyrandi.
Ég skellti mér í fótbolta með nokkrum félögum á gervigrasinu í gær.  Þetta byrjaði rólega og menn voru bara að hita upp í fyrsta leik.  Síðan hófst... (more)</description>
Jáhá...
      <description>Presturinn biðlar til allra nær og fjær...
Jæja ætli það sé þá ekki best að byrja á miður skemmtilegum tíðindum, þau eru að við töpuðum fyrir Grindavík í gærkvöld með alltof stórum mun og maður gat ekki neitt.  Höfum þetta nóg af körfubolta í bili.
En annars er ekkert mjög merkilegt að frétta þannig. Ný börn að dælast inní fjölskylduna úr öllum áttum.
Ég er búinn með tvö próf í dag og eru allar líkur á því að útkoman verði gríðarlega góð!!
Annars var helgin mjög fljót að líða og maður gerði mest lítið annað en að horfa á sjónvarp og sofa.
En núna um næstu helgi þá er Barkinn hinn... (more)</description>
Flengdir í Keflavík!!
      <description>Sælt veri fólkið...
Það fór illa fyrir okkur Hattarstrákum sem mættum hungraðir í sigur til bítlabæjarinns á fimmtudaginn var.  Við byrjuðum leikinn ágætlega og vorum yfir eftir fyrsta fjórðung og síðan 7 stigum undir í hálfleik, Zeko var manna bestur í fyrri og hafði skorað alls 24 stig þegar flautann sagði hálfleikur.
Í seinni hálfleik þá var tvennt sem var að, við komum hundlélegir inná völlinn í byrjun þriðja fjórðungs og Keflavík byrjuðu að pressa okkur alltof vel og stálu mörgum boltum sem ég kalla ekki mikla gestrisni þegar sveitamennirnir á botninum komu í bítlabæinn og lokatölur... (more)</description>
Pönnukökur frá Elsu og maginn alveg ónýtur
      <description>Ef ykkur er boðið uppá pönnukökur sem að Elsa Harðardóttir hefur bakað þá skuliði afþakka!!  Ég reif í mig fjögur stykki og held að ég verði ekki samur eftir það, kominn með útþanninn maga af pönnusýru og veit ekki betur en að ég sé að missa sjón.
Nú er að koma að leiknum í Keflavík þar sem okkar menn verða með sitt sterkasta lið og eiga eftir að ógna Keflvíkingum fyrstu mínúturnar.  
Síðan er maður núna bara í því að skerpa á litlu strákunum í 5. flokk sem ég er að fara með í úrslit innanhúss þann 19. feb, þar sem ég tel mína menn líklega til góðs árangurs!  Kannski einn bikar í hús, maður... (more)</description>
Ég Hræðist augnlækna
      <description>Góða kvöldið góðir hálsar!
Helgin á stutt eftir og blessaður skólinn tekur við fyrir allar aldir í fyrramálið, maður var bara rólegur á því um helgina bæði hérna heima og á Múlaveginum þar sem kökur og kræsingar voru fremstar í flokki.
Það er nú ekki langt í næsta leik í körfunni, við spilum við Keflavík í bítlabænum á fimmtudagskvöldið komandi vona ég að ferskir félagar manns úr borg óttans Reykjavík mæti með röddina að vopni til að hvetja okkur Hattara, ekki veitir nú af;)
Sylvía Nótt gerði gríðalega góða hluti í söngvakeppninni á laugardagskvöldið og allt stefnir í að leið hennar liggi í... (more)</description>
Góðan daginn lesendur góðir
      <description>Þá er komið að því...
Nú hef ég ákveðið vegna mikilla eftirspurna að búa til eitt svona nett blogg.  Ég er bara að byrja með síðuna núna og set þennan texta inn til þess að þeir sem sjá þetta geti gefið mér link og síðan kem ég með eldheitt blogg í kvöld eða á morgun.
Ég geri þessa síðu til þess að koma hugsunum mínum á net alheims og munið þið lesendur góðir fá að njóta stundum gáfulegra og stundum ruglaðra blogga hérna í framtíðinni!
Bið að heilsa í bili...  Séra Viðar er kominn á netið</description>