Entry: Henry er kóngurinn Wednesday, February 22, 2006



Sælt veri fólkið og afsakið hversu lengi ég hef verið fjarri góðu gamni hérna á blogginu en nú verður aldeils messað!

Já eins og titillin segir ykkur þá fór kóngurinn Henry á kostum með Arsenal í gær þegar þeir yfirspiluðu Real Madrid í Madrid og voru mínir menn gríðalega óheppnir að vinna ekki mun stærra.
Það er langt síðan maður hefur séð Arsenal liðið spila svona vel og held ég að þeir eigi eftir að ná langt í Meistaradeildinni í ár!

Síðan var ball á föstudaginn með Á Móti Sól og voru þeir gríða góðir eins og venjulega, mikil stemming og helstu elítur mættar í partý hjá Markúsi fyrir ball.
Tóti hefur nú kannski ekki verið mjög sáttur með allt ballið þar sem ég reif buxurnar hans alveg óvartBig Smile Svanurinn var nettur fljúgandi um með fuglaflensu meðan ég og Tóti sprettum á eftir honum til að reyna að ná í kvikindið.  En annars eru myndir um allt af þessu balli t.d. á Elsu síðu www.elsa422.myphotoalbum.com

Ég var í Reykjavík um síðustu helgi með strákana mína í 5. flokki, þeir voru að keppa í úrslitum ísl.mótsins innanhúss en það gekk ekki nægilega vel og enduðu þeir í 8 sæti.
Í þessari sömu ferð þá notaði ég mér tækifærið og fór í Kringluna og keypti gleraugu eins og ég þurfti, vááá hvað það er mikill munur:) ég er farinn að geta setið á aftasta bekk í tímum og séð á töfluna!! hehe

En það eru opnir dagar núna í skólanum þannig það er bara gaman og vorum við nokkrir strákar bara í körfubolta í dag.  Þarna voru óvæntir menn að sýna lipra tilburði eins og til dæmis Tankurinn sem var nettur, Doktorinn reif niður fráköst og var með betri þriggja stiga nýtingu en kobbi!!

En nóg í bili, kem með blogg á morgun þar sem verður farið yfir helstu hluti fyrir leikin sem er annað kvöld.  Ný og erfið spurning verður kominn á síðuna í því bloggi.
Sr. Viðar kveður!

   3 comments

Tóti
February 23, 2006   08:09 PM PST
 
Ég vill sjá þig kaupa nýjar buxur handa mér....glámur
Haddý...
February 23, 2006   05:01 PM PST
 
það hefur ekki verið stuð á balli án min það getur ekki verið !
Selma
February 23, 2006   03:11 PM PST
 
Ég vil sjá þig á balli á laugardinn venur!!!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments