Entry: Ronaldinho hvað?? Wednesday, February 15, 2006



HÆHÆ enn og aftur!

Maður segir nú allt það fína þessa dagana þrátt fyrir það að fuglaflensan nálgist hraðar og hraðar landið okkar litla.  Hvað gerist ef fuglaflensan berst til Íslands, ekki var það ég sem kaus Guðna Ágústsson sem landbúnaðarráðherra og Jón Kristjánsson sem heilbrigðisráðherra því þessir menn eiga ekki eftir að geta gert mikið þegar flensan skæða skellur á.  Búið að vera skíta veður í dag með snjó, vindi og öllu tilheyrandi.

Ég skellti mér í fótbolta með nokkrum félögum á gervigrasinu í gær.  Þetta byrjaði rólega og menn voru bara að hita upp í fyrsta leik.  Síðan hófst alvaran þá fór maður að taka á því og sýndi allar sýnar bestu hliðar sem minna á Maradona á árum áður.
Síðan fer ég heim horfi á Liverpool - Arsenal þar sem mínir menn eiga enn einn lélega leikinn, en það er ekki frásögufærandi nema nokkrum mínútum eftir leikinn þá hringir síminn og hver annar en Arsene Wenger og segir mér að ég verði að vera kominn fyrir næsta leik því hann hafði haft mann til að fylgjast með mér áðan á gervigrasinu.  Ég skildi nefnilega ekkert hvaða maður sat þarna í rólunum hjá skólanum og var með myndavél og að skrifa eitthvað en þá var þetta Martin Keown að skoða menn fyrir Wenger. -> En ég neyddist til að neyta þessu annars ágæta tilboði, maður verður nú að reyna að klára körfuboltatímabilið eins og maður og hysja upp um sig buxurnar!!

Annars datt ég inná mjög fyndinn texta hérna á netinu með íslenskum nöfnum.  Hvað er fólk eiginlega að pæla ef það skýrir börnin sín svona!
_____________________________________________________________
Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var
að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann.
Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim.
Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli.
Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar
Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum.
Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni.
Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar.
Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín?
Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni, og Ævar Eiður stóð við hlið bílsins öskrandi og veinandi því hann hafði næstum því orðið undir..
Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum.
Hún var orðin alltof sein í afmælið.

En nóg af messu í bili.
Guð veri með ykkur, Sr. Viðar Örn

   2 comments

Tóti
February 22, 2006   12:57 AM PST
 
Þessi síða er búinn....þú hættur að blogga og bara komin með gleraugu
SeX STARS
February 21, 2006   10:53 PM PST
 
Link á oss....!!!! www.blog.central.is/sexstars !!!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments