|
Sælt veri fólkið... Það fór illa fyrir okkur Hattarstrákum sem mættum hungraðir í sigur til bítlabæjarinns á fimmtudaginn var. Við byrjuðum leikinn ágætlega og vorum yfir eftir fyrsta fjórðung og síðan 7 stigum undir í hálfleik, Zeko var manna bestur í fyrri og hafði skorað alls 24 stig þegar flautann sagði hálfleikur. Síðan hef ég aðrar leiðindafréttir að færa ykkur kæru lesendur, eða það verður kannski gaman fyrir ykkur að sjá mig með GLERAUGU!!! Ég endurtek að Viðar Örn þarf að fara að nota gleraugu og er ég ekki sáttur með það þar sem ég lít út eins og fáviti með öll gleraugu sem ég hef prófað. En annars er mest lítið að frétta svona, verður slatti að gera í skólanum í næstu viku en skipulag mitt og dugnaður gerir það að verkum að ég rúlla því upp. Kem með annað blogg á morgun því klukkan er orðin svo margt að ég verð að leggjast uppí hjá veikri Hrefnu minni! |
| Haffi February 13, 2006 01:10 PM PST Viddi, þú veisst að það eru bara gáfaðir menn með gleraugu! :) | ||
| Hafliði February 13, 2006 01:01 PM PST já þessi m´lingasaga er hreinasti viðbjóður, ...ég læt nú bjóða mér ýmilsegt en jésús góður ekki svona mælingar | ||
| anton February 12, 2006 04:07 PM PST hvað er -að tesssu spjalli tarna eg er bara of heimskur til að geta skrifað a tvi | ||
| Tóti February 11, 2006 06:34 PM PST Nei hann ætti ekkert að segja frá því hér á síðunni...nóg að hann sagði mér frá þessu með rassamælinn og sementið. Ekki saga til að segja öllum | ||
| Hrefna February 11, 2006 05:02 PM PST Það er ágætt að þú minntist ekkert á mælinguna í gærkvöldi :) | ||
| Leave a Comment: |