|
Góða kvöldið góðir hálsar! Helgin á stutt eftir og blessaður skólinn tekur við fyrir allar aldir í fyrramálið, maður var bara rólegur á því um helgina bæði hérna heima og á Múlaveginum þar sem kökur og kræsingar voru fremstar í flokki. Það eru ekki góð tíðindin sem allir eru að skjóta að manni þessa dagana, ég hef oftar en ekki heyrt þessa setningu frá mömmu, Hrefnu og fleirum "Viðar minn ég held að það sé kominn tími að þú kíkir til augnlæknis". Litlir stafir sem er langt frá mér eru ekki alltaf í fókus þannig að ég held maður neyðist til að hlusta á þær og kíkja til doksa:( Ég hef nú samt oft sett upp gleraugu og það margar gerðir en ég lýt alltaf út eins og skrattinn í sauðalæknum. Síðan þarf maður að fara að finna sér einhverja fleiri fídusa hérna á síðuna til að vekja lukku í bloggheiminum, það væri nú soldið sniðugt að setja teljara og skoðanakönnun. Ekki? nei ekki ég sé þá bara til með það. En sr. Viðar biður bara að heilsa í bili, aumur í maganum eftir allar kræsingarnar í dag!
|
| Gústi February 7, 2006 11:20 AM PST Hhahaha!!! Kurt Viðar Rambis!!! nýtt útlit! | ||
| Viðar February 6, 2006 01:58 PM PST Ég held að það mundi vekja gríðarlega lukku að fá sér stór kassagleraugu | ||
| stebbi ey February 6, 2006 01:02 AM PST ég er í sama djöfulsins ruglinu .. sé gríðarlega óskýrt , fattaði það ekki fyrr en ég setti upp gleraugu... við tveir gleraugnabræður .. hvað segirrru um það prelli ?? :) | ||
| Leave a Comment: |