 |
. . . . . Viðar Örn . . . . .
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
Wednesday, March 01, 2006
Jæja já, nú mun ég messa yfir þeim sem eru að segja að þessi síða sé látinn!
Langt síðan ég hef bloggað en það sem hefur gengið á síðan þá:
- Sigur í leik á móti Fjölni síðasta fimmtudag, gleði og hamingja hjá okkar mönnum
- Fór til Reykjavíkur um helgina í fínustu ferð
- Leikur á sunnudaginn var gegn Njarðvík þar sem við réðu ekki við Njarðvíkinga hvað þá heldur þegar þeir fengu dómarana með sér
- Kom heim á mánudaginn og varð fyrir vonbrigðum þegar mamma var ekki búin að baka bollur
- Var veikur í gær (þriðjudag) en er nú risinn úr rekkju og farinn að blogga eins og bloggara sæmir
En nú hef ég ákveðið að halda smá keppni hérna á síðunni! Þið skrifið smásögu sem má ekki vera mjög löng í kommentin hérna að neðan og sá sem vinnur fær vegleg verðlaun í boði prestsins... Það sem þarf að koma fram í sögunni er: - Kobbi - Rollur - Magadans - Snjór En annars látið þið bara hugann reika!
En nóg í bili, það kemur ný kosning í næsta bloggi og skemmtileg spurningarkeppni. Þangað til þá, veri guð með ykkur!
Sr. Viðar eldferskur
Posted at Wednesday, March 01, 2006 by vidar_orn
Permalink
Wednesday, February 22, 2006
Sælt veri fólkið og afsakið hversu lengi ég hef verið fjarri góðu gamni hérna á blogginu en nú verður aldeils messað!
Já eins og titillin segir ykkur þá fór kóngurinn Henry á kostum með Arsenal í gær þegar þeir yfirspiluðu Real Madrid í Madrid og voru mínir menn gríðalega óheppnir að vinna ekki mun stærra. Það er langt síðan maður hefur séð Arsenal liðið spila svona vel og held ég að þeir eigi eftir að ná langt í Meistaradeildinni í ár!
Síðan var ball á föstudaginn með Á Móti Sól og voru þeir gríða góðir eins og venjulega, mikil stemming og helstu elítur mættar í partý hjá Markúsi fyrir ball. Tóti hefur nú kannski ekki verið mjög sáttur með allt ballið þar sem ég reif buxurnar hans alveg óvart Svanurinn var nettur fljúgandi um með fuglaflensu meðan ég og Tóti sprettum á eftir honum til að reyna að ná í kvikindið. En annars eru myndir um allt af þessu balli t.d. á Elsu síðu www.elsa422.myphotoalbum.com
Ég var í Reykjavík um síðustu helgi með strákana mína í 5. flokki, þeir voru að keppa í úrslitum ísl.mótsins innanhúss en það gekk ekki nægilega vel og enduðu þeir í 8 sæti. Í þessari sömu ferð þá notaði ég mér tækifærið og fór í Kringluna og keypti gleraugu eins og ég þurfti, vááá hvað það er mikill munur:) ég er farinn að geta setið á aftasta bekk í tímum og séð á töfluna!! hehe
En það eru opnir dagar núna í skólanum þannig það er bara gaman og vorum við nokkrir strákar bara í körfubolta í dag. Þarna voru óvæntir menn að sýna lipra tilburði eins og til dæmis Tankurinn sem var nettur, Doktorinn reif niður fráköst og var með betri þriggja stiga nýtingu en kobbi!!
En nóg í bili, kem með blogg á morgun þar sem verður farið yfir helstu hluti fyrir leikin sem er annað kvöld. Ný og erfið spurning verður kominn á síðuna í því bloggi. Sr. Viðar kveður!
Posted at Wednesday, February 22, 2006 by vidar_orn
Permalink
Wednesday, February 15, 2006
HÆHÆ enn og aftur!
Maður segir nú allt það fína þessa dagana þrátt fyrir það að fuglaflensan nálgist hraðar og hraðar landið okkar litla. Hvað gerist ef fuglaflensan berst til Íslands, ekki var það ég sem kaus Guðna Ágústsson sem landbúnaðarráðherra og Jón Kristjánsson sem heilbrigðisráðherra því þessir menn eiga ekki eftir að geta gert mikið þegar flensan skæða skellur á. Búið að vera skíta veður í dag með snjó, vindi og öllu tilheyrandi.
Ég skellti mér í fótbolta með nokkrum félögum á gervigrasinu í gær. Þetta byrjaði rólega og menn voru bara að hita upp í fyrsta leik. Síðan hófst alvaran þá fór maður að taka á því og sýndi allar sýnar bestu hliðar sem minna á Maradona á árum áður. Síðan fer ég heim horfi á Liverpool - Arsenal þar sem mínir menn eiga enn einn lélega leikinn, en það er ekki frásögufærandi nema nokkrum mínútum eftir leikinn þá hringir síminn og hver annar en Arsene Wenger og segir mér að ég verði að vera kominn fyrir næsta leik því hann hafði haft mann til að fylgjast með mér áðan á gervigrasinu. Ég skildi nefnilega ekkert hvaða maður sat þarna í rólunum hjá skólanum og var með myndavél og að skrifa eitthvað en þá var þetta Martin Keown að skoða menn fyrir Wenger. -> En ég neyddist til að neyta þessu annars ágæta tilboði, maður verður nú að reyna að klára körfuboltatímabilið eins og maður og hysja upp um sig buxurnar!!
Annars datt ég inná mjög fyndinn texta hérna á netinu með íslenskum nöfnum. Hvað er fólk eiginlega að pæla ef það skýrir börnin sín svona! _____________________________________________________________ Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann. Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim. Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli. Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum. Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni. Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar. Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín? Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni, og Ævar Eiður stóð við hlið bílsins öskrandi og veinandi því hann hafði næstum því orðið undir.. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum. Hún var orðin alltof sein í afmælið.
En nóg af messu í bili. Guð veri með ykkur, Sr. Viðar Örn
Posted at Wednesday, February 15, 2006 by vidar_orn
Permalink
Monday, February 13, 2006
Presturinn biðlar til allra nær og fjær...
Jæja ætli það sé þá ekki best að byrja á miður skemmtilegum tíðindum, þau eru að við töpuðum fyrir Grindavík í gærkvöld með alltof stórum mun og maður gat ekki neitt. Höfum þetta nóg af körfubolta í bili.
En annars er ekkert mjög merkilegt að frétta þannig. Ný börn að dælast inní fjölskylduna úr öllum áttum. Ég er búinn með tvö próf í dag og eru allar líkur á því að útkoman verði gríðarlega góð!! Annars var helgin mjög fljót að líða og maður gerði mest lítið annað en að horfa á sjónvarp og sofa.
En núna um næstu helgi þá er Barkinn hinn geysivinsæli á föstudagskvöldið og þar verður maður að láta sjá sig bæði á keppninni og á balli. Á laugardaginn verður síðan haldið til Reykjavíkur með litlu pjakkana mína í 5. flokki að keppa í úrslitum innanhúss en þeir keppa á sunnudaginn... Ferðin verður líka notuð í annað sem er að velja sér augu úr gleri og verð ég að reyna að finna mér einhverja ábyrga manneskju með mér í það, er með eina í huga en ef þið hafið einhverjar uppástungur á miklu smekksfólki eða fallegum gleraugum þá endilega segið mér frá því!!
En ég ákvað að apa upp eftir haffa og hafa smá svona keppni hérna í gangi!

Hverjir eru þessir menn? Nefnið tvö lið sem sá litli hefur spilað með?
Þá er komið nóg af bulli í dag! Sr. Viðar þakkar fyrir komuna og vonar að þetta hafi verið skemmtileg messa.
Posted at Monday, February 13, 2006 by vidar_orn
Permalink
Saturday, February 11, 2006
Sælt veri fólkið...
Það fór illa fyrir okkur Hattarstrákum sem mættum hungraðir í sigur til bítlabæjarinns á fimmtudaginn var. Við byrjuðum leikinn ágætlega og vorum yfir eftir fyrsta fjórðung og síðan 7 stigum undir í hálfleik, Zeko var manna bestur í fyrri og hafði skorað alls 24 stig þegar flautann sagði hálfleikur. Í seinni hálfleik þá var tvennt sem var að, við komum hundlélegir inná völlinn í byrjun þriðja fjórðungs og Keflavík byrjuðu að pressa okkur alltof vel og stálu mörgum boltum sem ég kalla ekki mikla gestrisni þegar sveitamennirnir á botninum komu í bítlabæinn og lokatölur voru 119-79. Zeko skoraði 33 stig tók 12 fráköst og var yfirburðamaður, Loftur skoraði 15 og ég og Eugene 10 hvor sem er ekki nægilega gott!!!
Síðan hef ég aðrar leiðindafréttir að færa ykkur kæru lesendur, eða það verður kannski gaman fyrir ykkur að sjá mig með GLERAUGU!!! Ég endurtek að Viðar Örn þarf að fara að nota gleraugu og er ég ekki sáttur með það þar sem ég lít út eins og fáviti með öll gleraugu sem ég hef prófað. Þegar ég var inni hjá augnlækninum og hann búinn að segja að ég þyrfti gleraugu og var eitthvað að tala um það þá sat ég á meðan og peppaði mig upp í það að spyrja hvort ég mætti ekki fá mér linsur, en neinei þá tekur kallinn og les mér pistilinn um það að ég hafi ekkert við það að gera og taldi upp kosti og galla en það voru bara allt gallar í hans augum (greinilega illa upplagður þennan morguninn). Þannig að ég neyðist til að fá mér gleraugu og þori varla að horfa á fólk með linsur eftir þennan rosalega pistil frá augnlækninum.
En annars er mest lítið að frétta svona, verður slatti að gera í skólanum í næstu viku en skipulag mitt og dugnaður gerir það að verkum að ég rúlla því upp.
Kem með annað blogg á morgun því klukkan er orðin svo margt að ég verð að leggjast uppí hjá veikri Hrefnu minni! Sæl að sinni, Sr. Viðar með nýju gleraugun!!
Posted at Saturday, February 11, 2006 by vidar_orn
Permalink
Tuesday, February 07, 2006
Pönnukökur frá Elsu og maginn alveg ónýtur
Ef ykkur er boðið uppá pönnukökur sem að Elsa Harðardóttir hefur bakað þá skuliði afþakka!! Ég reif í mig fjögur stykki og held að ég verði ekki samur eftir það, kominn með útþanninn maga af pönnusýru og veit ekki betur en að ég sé að missa sjón.
Nú er að koma að leiknum í Keflavík þar sem okkar menn verða með sitt sterkasta lið og eiga eftir að ógna Keflvíkingum fyrstu mínúturnar.
Síðan er maður núna bara í því að skerpa á litlu strákunum í 5. flokk sem ég er að fara með í úrslit innanhúss þann 19. feb, þar sem ég tel mína menn líklega til góðs árangurs! Kannski einn bikar í hús, maður veit aldrei...
Ef þið hafið ekki kíkt inná www.kvikmynd.is í langan tíma þá hvet ég ykkur endilega til að gera það og kíkja á þetta hér sem er örugglega með því fyndnara sem ég hef séð á netinu í langan tíma. Einnig hvet ég ykkur að kíkja inná síðuna hjá Bjössa www.blog.central.is/blogdogs og skoða þar samtal sem varð á milli Sveinbjörns og pabba Bödda P fyrir nokkrum árum.
En síðan fer maður bara í borgina á fimmtudaginn, líklegt að maður taki snemma og kíki til augnlæknis ef ég fæ tíma. Annars kemur bara næsta blogg þegar ég kem heim frá borg óttans með heit úrslit úr leik Hattar og Keflavíkur.
Farinn í Bubbles sem á hug minn allan þessa dagana Hilsen, Sr. Viðar
Posted at Tuesday, February 07, 2006 by vidar_orn
Permalink
Sunday, February 05, 2006
Góða kvöldið góðir hálsar!
Helgin á stutt eftir og blessaður skólinn tekur við fyrir allar aldir í fyrramálið, maður var bara rólegur á því um helgina bæði hérna heima og á Múlaveginum þar sem kökur og kræsingar voru fremstar í flokki. Það er nú ekki langt í næsta leik í körfunni, við spilum við Keflavík í bítlabænum á fimmtudagskvöldið komandi vona ég að ferskir félagar manns úr borg óttans Reykjavík mæti með röddina að vopni til að hvetja okkur Hattara, ekki veitir nú af;) Sylvía Nótt gerði gríðalega góða hluti í söngvakeppninni á laugardagskvöldið og allt stefnir í að leið hennar liggi í "Júróvisjon", EN NEINEI menn bara byrjaðir að kæra stúlku kindina því þeir eru svo tapsárir.
Það eru ekki góð tíðindin sem allir eru að skjóta að manni þessa dagana, ég hef oftar en ekki heyrt þessa setningu frá mömmu, Hrefnu og fleirum "Viðar minn ég held að það sé kominn tími að þú kíkir til augnlæknis". Litlir stafir sem er langt frá mér eru ekki alltaf í fókus þannig að ég held maður neyðist til að hlusta á þær og kíkja til doksa:( Ég hef nú samt oft sett upp gleraugu og það margar gerðir en ég lýt alltaf út eins og skrattinn í sauðalæknum.
Síðan þarf maður að fara að finna sér einhverja fleiri fídusa hérna á síðuna til að vekja lukku í bloggheiminum, það væri nú soldið sniðugt að setja teljara og skoðanakönnun. Ekki? nei ekki ég sé þá bara til með það.
En sr. Viðar biður bara að heilsa í bili, aumur í maganum eftir allar kræsingarnar í dag! Sælar!
Posted at Sunday, February 05, 2006 by vidar_orn
Permalink
Friday, February 03, 2006
Góðan daginn lesendur góðir
Þá er komið að því...
Nú hef ég ákveðið vegna mikilla eftirspurna að búa til eitt svona nett blogg. Ég er bara að byrja með síðuna núna og set þennan texta inn til þess að þeir sem sjá þetta geti gefið mér link og síðan kem ég með eldheitt blogg í kvöld eða á morgun.
Ég geri þessa síðu til þess að koma hugsunum mínum á net alheims og munið þið lesendur góðir fá að njóta stundum gáfulegra og stundum ruglaðra blogga hérna í framtíðinni!
Bið að heilsa í bili... Séra Viðar er kominn á netið
Posted at Friday, February 03, 2006 by vidar_orn
Permalink
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|